föstudagur, 29. febrúar 2008

Föstudagurinn langi og þangað til...

Bænin má aldrei bresta þig er komin inn til að hlusta á. Það syngjum við 9 mars. Athuga mætingu í sópran og bassa á næstu æfingu!!!
16. mars, Pálmasunnudag, er fermingarmessa: 41 og 256.
21. mars, föstudaginn langa: Stabat Mater e. Kodaly (nótur), Heyr himna smiður, Ave verum corpus e. Mozart og Ég kveiki á kertum mínum

miðvikudagur, 27. febrúar 2008

Prógramm komið í hús

Hér má sjá hugmyndir að viðfangsefnum og það í Excel! Endilega kíkjið á þetta og kommentið ef e-ð er. Kv, Kári.

sunnudagur, 17. febrúar 2008

Sálmar á netinu

Kæru kórfélagar. Við erum komin í feitt! Svona má sjá nótur og hlusta á þær um leið:
fyrst þarf að hala niður ókeypis forriti...
http://www.noteworthysoftware.com/product-news.php
velja þarf Player...
síðan er farið á http://www.kirkjan.net/salm/salmbok.htm
og þar er hægt að hlusta á verkin! (ef niðurhalið á Playernum klikkar er hægt að fara á kirkjan.net og fylgja leiðbeiningunum þaðan)
Næstum öll verkin sem við munum vinna með eru þarna inni. Hin mun ég síðan setja inn með gömlu aðferðinni.
Fljótlega birtist síðan listi með æfingaplani út misserið.